Fréttir
September 2016
Nú hefur verið bætt við nýjum greinum og fróðleik um söguaðferðina. Greinar má finna hér á síðunni undir söguaðferðin eða hér. 7. febrúar 2016. Nú er ég að vinna sögurammann um Ísland -veröld til að njóta með 5. bekknum mínum og það gengur vel. Krakkarnir eru áhugasamir og voru að skoða áhugaverða staði á Vesturlandi í síðustu viku. 5. febrúar 2016. Ég heimsótti kennara í Grundaskóla á Akranesi. Þeir ætla að vinna með sögurammann um Dýrin í Hálsaskógi í öllum skólanum í febrúar. Það verður mjög gaman að heyra hvernig gengur og hver þeirra útfærsla verður. 15. nóvember 2015 þessi endurgerða síða er að komast í loftið í dag. 15. nóv 2015. Þessa dagana er ég að vinna í sögurammanum Landnám Íslands með 5. bekknum mínum. Alltaf jafn skemmtilegt. 5. nóv 2015. Nýbúið er að semja söguramma út frá bókinni Ísland - veröld til að njóta. 2. október 2015. Var ég með námskeið á Selfossi með kennurum á Suðurlandi. Við unnum hluta af sögurammanum út frá bókinni Dýrin í Hálsaskógi en þar er athyglinni beint að ýmsum þáttum í lífi dýranna í Hálsaskógi sem ef til vill er nýmæli. Það var mjög gaman að vinna með kennurum á Suðurlandi þessa morgunstund og ekki vantaði hugmyndaflugið. |
Ég held styttri og lengri námskeið um söguaðferðina fyrir hópa og skóla. Af mér er hægt er að kaupa söguramma. Hægt er að finna úrval hér á síðunni undir sögurammar Sími: 555-2357 GSM: 899-2357 [email protected] og [email protected] |