Síðan 1993 hefur verið unnið með söguaðferðinni í Kársnesskóla. Forsenda þess að nota söguaðferðina er að hafa söguramma (verkefni) sem eru sniðnir að því námsefni sem unnið er með hverju sinni. Vegna þessa skapaðist mikil þörf fyrir söguramma fyrir alla aldurshópa sem falla að Aðalnámskrá. Við í Kársnesskóla hófumst þá handa við að semja og staðfæra söguramma. Þetta fréttist fljótlega og aðrir kennarar vildu gjarnan fá aðgang að sögurömmunum. Ég, Björg sel sögurammana og sendi sögurammana rafrænt en reikninginn í pósti ef óskað er. Hver sögurammi kostar 3000 krónur.
Vinsamlegast pantið söguramma í netfangið: [email protected] Hér kemur listi yfir þá söguramma sem eru til og stutt lýsing á umfjöllunarefni þeirra. Neðst á síðunni eru myndir af vinnu við sögurammana.
|
|